Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Lögregla fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys um klukkan hálf tólf í dag. Búið var að boða björgunarsveitir klukkan 11:42 og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar þremur mínútum síðar.
Vegurinn um Jökuldal er lokaður meðan vinna á vettvangi stendur yfir, að sögn lögreglu. Hún hyggst ekki gefa út frekari upplýsingar á þessu stigi.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Ef vaktin birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að prófa að endurhlaða vefsíðuna.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.