Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur rætt við Ingu Sæland félagsmálaráðherra um óljós mörk á milli ráðuneyta þegar kemur að endurhæfingarmálum. Hún segir að dæmi séu um að ungt fólk í endurhæfingu hafi ekki fengið þá þjónustu sem það vildi. Mönnunarvandi sé ástæða þess að stofnanir dragi saman eða loki á sumrin.
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að sóknarfæri séu í því í heilbrigðiskerfinu að opinberir aðilar, einkaaðilar og mismunandi þjónustustig stilli betur saman strengi sína. Óljós mörk séu á milli mismunandi tegunda endurhæfingar sem eiga heima hjá sitt hvoru ráðuneytinu.
Í viðtali við Heimildina segir hún einnig að dæmi séu um að ungt fólk í endurhæfingu hafi ekki fengið þá þjónustu sem það vildi og að styrkja þurfi endurhæfingu barna.
Alma tileinkaði fyrsta Heilbrigðisþing sinnar ráðherratíðar endurhæfingu síðasta haust. „Hún er einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustu og það er þannig að við þurfum auðvitað að nýta okkar fjármuni með bestum hætti þannig að virðið verði sem mest og við náum sem mestum árangri fyrir þá fjármuni sem við höfum úr að spila,“ segir hún. „Við verðum að fá sem mesta heilsu fyrir peningana. Þar vitum við að endurhæfing skilar miklu virði.“
„Við verðum að fá sem mesta heilsu fyrir peningana
Til stóð að …