Sameinast um góð mál

Geir Ágústsson skrifar:
Tillaga Miðflokksins, m.a. um að gjaldfrjálsri túlkaþjónustu verði sett tímamörk, var samþykkt á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í vikunni. Samþykkt var að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs með 15 atkvæðum, en auk borgarfulltrúa Miðflokksins greiddu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar henni atkvæði sitt.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Reykvíkinga en um leið frábærar að öðru leyti: Hérna eru flokkar frá miðju til hægri að sameinast um gott mál, þvert á meiri- og minnihlutalínur. Venjulega gerist slíkt bara þegar menn eru að hækka skatta, auka ríkisútgjöld eða herða þumalskrúfuna á almennum borgurum. Hérna er slíkt að gerast í tilviki niðurskurðar, skertrar þjónustu í boði skattgreiðenda og forgangsröðunar frá þeim innfluttu til þeirra innfæddu.
Frábært, og vonandi eitthvað sem smitast inn á Alþingi. Þar gætu sömu flokkar og samþykktu þetta mál sameinast um að minnka dekrið við þá sem segjast vilja búa á Íslandi án þess að taka þátt í íslensku samfélagi og læra tungumálið.
Í raun er alveg undravert að íslensk lög veiti þeim sem kunna ekki að lesa þau alveg óendanlegt hlaðborð af ávísunum og niðurgreiðslum. Ég man þegar ég flutti til Danmerkur á sínum tíma og kunni ekki að tala dönskuna. Skilaboðin voru einföld: Þú sérð um þig sjálfur eða kemur þér í burtu. Gott mál, því innan mánaðar var ég kominn með vinnu (fyrst að þrífa og síðar að bera út póst og loks verkfræðistarf) og húsnæði og aðlögunin að samfélaginu hafin.
Svo má auðvitað velta því fyrir sér hvort ekki mætti minnka þörfina á túlkaþjónustu með því að einfalda aðeins reglugerða- og stofnanafrumskóginn. Mér er minnisstæð fréttin um manninn sem komst að því að einhver hafði skráð lögheimili sitt á fasteign sem hann átti, og sem gerði það að verkum að leigjendur hans fengu ekki lengur húsaleigubæturnar sínar. Eigandi fasteignarinnar þurfti að hlaupa á milli stofnana til að reyna laga málin fyrir leigjendur sína. Kannski góður túlkur hefði geta hjálpað honum að skilja kerfið.
Nema leiðsögumaður væri betri kostur.