Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins, við gagnrýni hans á útboð bæjarins vegna framkvæmda við stúku við Kórinn. Útboðið var úrskurðað ólögmætt af kærunefnd útboðsmála og skaðabótaskylda bæjarins vegna þessa viðurkennd. Ásdís segir gagnrýni Jónasar dapurlega og hann misskilji úrskurðinn.
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“