Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.
Björn Ólafur Haraldsson hafði lokið tveimur árum af hjúkrunarfræðinámi þegar hann hneig niður á heimili sínu 14. júlí í fyrra. Hann segist aldrei hafa lært sérstaklega um sjaldgæfar æðaflækjur í náminu. En einhvern veginn vissi hann á þessu augnabliki hvað hann væri að upplifa.
„Ég hélt fyrst að þetta væri mígreni en fattaði að ég hefði aldrei fengið mígreni áður svo það gæti ekki verið,“ segir Björn Ólafur, sem var 21 árs gamall þegar áfallið reið yfir. „Svo var ég með jafnvægistruflanir og fattaði þá strax hvað þetta var. Ég hafði farið fram til að taka paratabs því fyrst hélt ég að þetta væri bara hausverkur. En síminn minn var inni í svefnherbergi svo ég komst ekki til baka að hringja þegar ég kveikti á þessu. Ég datt á leiðinni og reyndi að standa upp en var með minni mátt í annarri hliðinni og gat það ekki.“
Björn Ólafur hafði …