Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins Landsbjargar staðfestir við fréttastofu að viðbragðsaðilar hafi verið kallaðir út. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi eru viðbragðsaðilar enn á leið á vettvang og því lítið hægt að segja um hvað gerðist á þessari stundu. Slysið er talið alvarlegt.
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir í samtali við fréttastofu að þyrla gæslunnar hafi verið kölluð út vegna slyssins kl. 11:45.
Fréttin verður uppfærð.