Guðrún segir að eldra fólk eigi skilyrðislaust að fá sér húðflúr.
Feyrún er tattústofa í Skipholti í Reykjavík þar sem er alltaf meira en nóg að gera hjá þeim átta starfsmönnum sem þar vinna. Stofan hefur þó aldrei fengið 99 ára manneskju í húðflúr áður, eða hana Guðrúnu, sem var að fá sér fiðrildahúðflúr á vinstri handlegg en húðflúrið sem hún fékk sér þegar hún var 96 ára er blóm á hægri hendi.
„Þetta er ótrúlega vel gert hjá henni. Já, mögnuð kona, alveg bara ótrúlegt, geggjað að sjá,” segir Karitas Gunnarsdóttir, annar af eigendum Freyrúnar tattústofu.
Ætti eldra fólk kannski að fá sér tattú?
„Algjörlega, ekki spurning, það er aldrei of seint,” segir Karitas.
Guðrún ólst upp í Hafnarfirði og Ólafsvík en býr í Reykjavík í dag. Dóttir Guðrúnar, Guðrún Olga, er stolt af mömmu sinni og húðflúrunum hennar.
„Hún var 96 ára þegar hún bað um tattú fyrst. Þegar ég fékk mér sjálf tattú í fyrsta skipti þá sagði hún: Mig langar í svona, þá var hún 96 ára. Síðan hefur hún eiginlega verið að nuða um að fá tattú fram að þessu og við létum loksins verða af því, fékk það í 99 ára afmælisgjöf,” segir Guðrún Olga.
Hvað heldur þú að valdi þessum mikla áhuga hennar?
„Henni finnst þetta bara svo flott og hún er svo mikill rokkari í höfðinu þó að hún sé svona gömul. Hún er mjög ung í anda, hún hefur gaman af tónlist, hlustar mjög mikið á tónlist og er mjög lifandi og áhugasöm um allt í kringum sig,” segir Guðrún Olga og bætir við.
„Ég er mjög stolt af henni, hún er frábær kona og mjög ólík öðrum konum sem ég þekki sem eru svona fullorðnar.”
En er ekkert mál fyrir 99 ára gamla konu að fá sér húðflúr?
„Nei, nei, það er bara gaman, mjög fínt, bara skemmtilegt. Það er ekkert óþægilegt að láta setja þetta á sig, það er bara mjög skemmtilegt og þægilegt, notalegt,” segir Guðrún.
Finnst þér að eldra fólk ætti að fá sér tattú?
„Alveg skilyrðislaust, bara alveg skilyrðislaust ætti það að gera það.”
En hver eru viðbrögð fólks þegar það veit af því að Guðrún er með húðflúr komin á þennan aldur?
„Þetta er klár kerling,” segir Guðrún hlæjandi.