Ráðið kom saman til fundar í dag til að ákveða hvort þingmenn flokksins myndu styðja tillögu formannsins, Elisabeth Thand Ringqvist, sem fólst í því að ganga í ríkisstjórn með Kristersson, formanni Moderaterna.
Formaðurinn tilkynnti í dag að ráðið hefði greitt atkvæði með því að styðja Kirstersson sem áframhaldandi forsætisráðherra þegar þingið greiðir atkvæði um málið á morgun. Ákvörðunin var þó ekki einróma, 36 greiddu atkvæði með en 23 á móti.
Þetta gerist aftur á móti eftir að stjórnarmyndunarviðræður hafa staðið yfir í 77 daga.
Minnihlutastjórnin yrði mynduð af Miðflokknum, Moderaterna, Frjálslynda flokknum og Kristilegum demókrötum, en mun þurfa að reiða sig á stuðning Svíþjóðardemókrata þó að þeir séu ekki beinn aðili að ríkisstjórninni.
Sumir flokksmenn hafa lýst óánægju sinni með ákvörðun Ringqvist enda hétu fulltrúar flokksins að ganga hvorki í ríkisstjórn með Vinstriflokknum né Svíþjóðardemókrötum.
Þrátt fyrir að Miðflokkurinn megi teljast til rauðgrænu fylkingarinnar svokölluðu tókst blokkinni ekki að mynda saman ríkisstjórn þar sem Miðflokksmenn vildu ekki verða við kröfu Vinstriflokksins um pláss í ríkisstjórn.