Andrea Marel Þorsteinsdóttir er teymisstjóri hjá Púlsinum sem er bráða- og viðbragðsteymi fyrir börn á aldrinum tíu til átján ára sem beita eða hóta líkamlegu ofbeldi og foreldra þeirra. Púlsinn tók til starfa í apríl og er ætlað að sporna gegn ofbeldi meðal barna.
Deildarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagði í samtali við fréttastofu í vikunni að forvarnarstarf og fræðsla hefðu skilað góðum árangri. Ofbeldi meðal barna hafi dregist saman undanfarið.
„Við erum að vinna með þeim í að reyna að finna aðrar leiðir til að leysa úr ágreiningi og vinna með fjölskyldum við að styðja við börnin til að láta af þessari hegðun. Það hefur gengið vel og við erum spennt að halda áfram þeirri vinnu. Það er gott samstarf í gangi á milli sveitarfélagannna á höfuðborgarsvæðinu og um allt land.“
Sjá einnig: Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna
Uppgjör færist í aukana
Fimm til tíu ungmenni á aldrinum fjórtán til tuttugu ára veittust að feðgum seint að kvöldi þann 26. september við Mjóddina. Þrír hafa stöðu sakbornings í málinu og er atvikið rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Svo virðist sem að um einhvers konar uppgjör hafi verið ræða en tengsl eru á milli sonarins og hópsins sem réðst á hann. Að sögn lögreglu var faðirinn á svæðinu til að veita syni sínum liðsinni.
Málið minnir óneitanlega á annað mál sem átti sér stað aðfaranótt fyrsta nóvembers í Breiðholti þar sem maður á fertugsaldri varð öðrum manni að bana. Þar var faðir mannsins viðstaddur til að vera honum innan handar.
Aðspurð segir Andrea það algjörlega til undantekninga að foreldrar mæti með börnunum sínum í slík uppgjör.
„Maður getur ímyndað sér að þetta sé erfið staða ef börnin manns upplifa hótanir eða ef það er verið að reyna að beina þeim á ákveðna staði þar sem á að gera upp einhver mál. Þá upplifa foreldrar mögulega þörf á að vernda börnin sín. Ég held að það sé bara gott að foreldrar og forsjáraðilar séu í góðu samtali við börnin sín um hvað sé í gangi á samfélagsmiðlum og endilega láta lögreglu vita ef þau hafa einhverjar upplýsingar um ofbeldi sem er yfirvofandi eða eitthvað uppgjör er í gangi meðal ungmenna.“
Það sé miður að mál þar sem börnum er stefnt á ákveðinn stað séu nú algengari en áður.
„Það hafa verið að koma upp mál þar sem börn hafa verið í einhverjum útistöðum inni á samfélagsmiðlum eða hafa fengið einhverjar hótanir frá einstaklingi eða hópum. Þá hefur niðurstaðan kannski orðið sú að hópurinn hefur ætlað að hittast einhvers staðar eða einstaklingur er beðinn um að mæta eitthvert á ákveðnum tíma þar sem á að gera málin upp.“
Þó nokkur dæmi um að samskipti á netinu leiði til uppgjörs
Andrea ítrekar að ef svoleiðis staða kemur upp sé best að mæta ekki á staðinn. Fólk og sérstaklega börn upplifi gjarnan eins og þau séu tilneydd til að mæta á staðinn.
„Stundum upplifir fólk sig ekki hafa neinna kosta völ og að þetta sé það eina sem sé í boði. Þá eiga þær upplýsingar að berast til lögreglu. Við hvetjum fólk til að mæta aldrei á staðinn, hvorki börnin né foreldrar. Það er aldrei að eitthvað gott að fara gerast í slíku uppgjöri og þetta er ekki leiðin til að leysa úr slíkum ágreiningi.“
Hún segir starf Púlsins til þessa hafa gengið vel. Spurð hvort ákveðin uppgjörsmenning sé að aukast í veldisvexti meðal ungmenna hér á landi segir hún:
„Við höfum séð alveg töluvert af þessu í samskiptum inni á samfélagsmiðlahópum og þetta er eitthvað sem við viljum ekki sjá, að ungmenni séu að hittast til að beita ofbeldi til að gera upp ágreiningsmál.“
Er það stundum þannig að þetta er þá hópur sem veitist að einum eða tveimur eða jafnvel tveir stórir hópar sem mætast í svona uppgjörum?
„Já, það hafa verið dæmi um slíkt og oft jafnvel stórir hópar sem ætla að mætast.“