„Ég var með konunni minni og barni og það sluppu allir þannig séð,“ segir Haukur Bent Sigmarsson í samtali við blaðamann, þau fjölskyldan hafi farið í skoðun á slysadeild Landspítalans eftir slysið og að engir alvarlegir áverkar hafi fundist við hana.
Þau séu aðallega aum, til að mynda eftir bílbeltið en sem betur fer hafi þau ekki verið á miklum hraða þegar áreksturinn varð. Það hafi án efa getað farið mikið verr og telur Haukur að það hafi skipt sköpum að vera á góðum bíl.
Á kortinu má sjá hvernig flóttamannaleiðin er yfirleitt afmörkuð en slysið virðist af myndinni að dæma hafa orðið á Elliðavatnsvegi nærri hesthúsahverfinu á Kjóavöllum, á mörkum Kópavogs og Garðabæjar.
„Maður mun örugglega breyta akstursleiðinni sinni eftir þetta,“ bætir hann þó við. Það hafi verið ökumaður og einn farþegi í hinum bílnum sem hafi einnig farið á slysadeildina eftir að bílarnir skullu saman. Hann viti ekki hvernig þau hafi það.
Bílarnir tveir hafi báðir líklegast verið fluttir í burtu enda óökufærir með öllu. Það hafi gengið vel að fá aðstoð og þau fjölskyldan ætli að taka því rólega í dag og jafna sig.
„Flott aðstoð alls staðar,“ segir hann og bætir við að þau muni hafa það notalegt heima fyrir í kvöld.