Norska ríkið hefur verið sýknað af kröfum rússneska sjávarútvegsfyrirtækisins Norebo í Héraðsdómi Óslóar. Dómurinn féll þann 17. nóvember.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að norskum stjórnvöldum hefði verið heimilt að synja Norebo um veiðileyfi í norskri efnahagslögsögu á grundvelli þvingunaraðgerða.
Norebo vildi meina að synjun norskra yfirvalda um veiðileyfi bryti gegn fiskveiðisamningi Noregs og Rússlands sem samþykktur var 1976. Þá taldi fyrirtækið einnig að norskum yfirvöldum væri einungis heimilt að synja um fiskveiðileyfi innan tólf mílna landhelgi Noregs. Dómurinn hafnaði báðum rökum.
Fjallað var ítarlega um málið á vefsíðu Varðbergs í gær.
Tengsl við Vélfagsmálið
Sömu þvingunaraðgerðir voru notaðar þegar fjármunir íslenska fyrirtækisins Vélfags voru frystir 2025. Ísland innleiddi þvingunaraðgerðir ESB gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu og tilrauna stjórnvalda í Rússlandi til að grafa undan stöðugleika í Evrópu.
Tengsl eru því á milli málanna en fjármunir Vélfags voru frystir af Arion banka og Landsbankanum þar sem grunur var um að eignartengsl Norebo Holding JSC og Vélfags hefðu ekki verið rofin. Norebo keypti meirihluta í Vélfagi í ársbyrjun 2022.
Vélfag og Norebo hafa þó haldið því fram að eignatengsl hafi verið rofin þegar Norebo seldi hlut sinn í Vélfagi til fyrirtækisins Titania Trading Limited árið 2023. Það fyrirtæki seldi svo sinn hlut í Vélfagi til kaupsýslumannsins Ivan Nicolai Kaufmann fjórum dögum áður en Norebo var sett á lista yfir fyrirtæki sem beita á þvingunaraðgerðum.
Aðgerðirnar gegn Vélfagi leiddu til langra málaferla sem enduðu með sýknu íslenska ríkisins fyrir Hæstarétti.
Norebo sakað um njósnir
Norebo er ein stærsta sjávarútvegssamstæða Rússlands og er í eigu feðganna Vitaly og Nikita Orlov. Ein af ástæðunum fyrir að Norebo var sett á þvingunarlista ESB er sú að talið er að fyrirtækið stundi njósnir og undirróðursstarfsemi fyrir rússnesk stjórnvöld í Evrópu.
Þetta kemur meðal annars fram í rökstuðningi Evrópusambandið hefur sett 2700 fyrirtæki og einstaklinga á þennan lista yfir þá sem sæta efnahagsþvingunum.