Óslóartréð var sótt til Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk og er það liðlega 12 metra hátt sitkagrenitré sem skreytt er 20.000 ljósum, 120 gylltum kúlum og svo fallegri jólastjörnu á toppnum. Ljósin á trénu voru tendruð klukkan 16:00 við hátíðlega athöfn á Austurvelli í dag.
Anna Dåsnes borgarfulltrúi frá Ósló flutti kveðju frá borginni og afhenti þýddar bækur að gjöf sem gefnar verða á skólabókasöfn í grunnskólum Reykjavíkur. Þá mátti einnig sjá jólasveinum og tröllum bregða fyrir.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri þakkaði Óslóarbúum fyrir gjöfina og vináttuna í gegnum árin í ræðu sinni. Að því loknu kom norsk-íslenska stúlkan Idunn Anda, níu ára, og tendraði ljósin á trénu.