Um 7.500 friðargæsluliðar munu snúa heim um áramótin.
Ísraelskir hermenn eru enn á svæðinu, þar sem þeir hafa hernumið og jafnað fjölda þorpa við jörðu. Framtíð Suður-Líbanon er mjög óviss.
Yfirvöld landsins vilja ekki að friðargæsluliðarnir fari en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti að hætta verkefninu í fyrra, að kröfu ríkisstjórnar Donalds Trump.
Öryggisráðið setti UNIFIL-verkefnið á laggirnar í mars 1978 og áttu friðargæsluliðarnir að ganga úr skugga um að Ísraelar hörfuðu frá Suður-Líbanon, tryggja friðinn og aðstoða yfirvöld Í Líbanon við uppbyggingu.
Ísraelar hafa lengi verið gagnrýnir á friðargæsluverkefnið og segja að það hafi misheppnast. Vísa þeir til þess að vígamenn Hezbollah hafi hernumið suðurhluta landsins og staðið þar í mikilli hernaðaruppbyggingu í gegnum árin.
Ísraelskir hermenn gerðu innrás í Líbanon árið 2024, með það að markmiði að brjóta Hezbollah á bak aftur. Síðan þá hafa ísraelskir hermenn hernumið hluta svæðisins og þrengt mjög að friðargæsluliðum.
Fyrir nákvæmlega tveimur árum tók vopnahlé gildi sem byggði að miklu leyti á ályktun öryggisráðsins frá 2006, þegar breytingar voru gerðar á UNIFIL-verkefninu. Samkvæmt þeirri ályktun máttu Hezbollah-liðar ekki halda til suður af Litaniá í Líbanon.
Sjá einnig: Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna
Ísraelar áttu einnig að hörfa þaðan og átti her Líbanon að taka við stjórn svæðisins og í senn afvopna Hezbollah. Það hefur heldur ekki gerst.
„Ég hef ekki það verkefni að afvopna Hezbollah,“ hefur AP-fréttaveitan eftir herforingjanum Diodato Abagnara sem leiðir UNIFIL-verkefnið.
„Verkefni mitt er að styðja her Líbanons, að skapa bestu aðstæðurnar fyrir það að herinn taki við stjórninni hér í suðri. Það er ekki að berjast við Hezbollah.“
Hann sagði einnig að gífurlega mikilvægt væri að koma í veg fyrir að tómarúm skapaðist ekki eftir að friðargæsluliðarnir fara, sem á að gerast í áföngum í upphafi næsta árs.
Íbúar óttaslegnir
Vera friðargæsluliðanna á svæðinu hefur hvorki stoppað loftárásir Ísraela né árásir Hezbollah á Ísrael. Þrátt fyrir það sögðust margir íbúa finnast þeir öruggari vegna þeirra, þegar blaðamaður AP ræddi við þá.
Meðal annars vísuðu þeir til aukinnar óvissu
Viðræður um framhaldið hafa ekki skilað árangri en ríkisstjórn Líbanons og Frakklands hafa lýst yfir vilja til að halda UNIFIL-verkefninu áfram. Það hafa Bandaríkjamenn ekki viljað en þeir hafa sagst opnir fyrir einhverskonar veru alþjóðlegra hermanna á svæðinu. Mögulega gætu málaliðar verið ráðnir til verksins.
Ísraelar vilja, í samstarfi við her Líbanons, afvopna Hezbollah að fullu í Suður-Líbanon og reka vígamenn samtakanna frá svæðinu.
Ríkisstjórnin í Líbanon segist hvorki vilja málaliða á svæðinu, né vinna með Ísraelum.
Í millitíðinni eru Frakkar sagðir vinna að nýrri ályktun sem þeir stefna á að leggja fyrir öryggisráðið um annarskonar alþjóðlega sveit sem gæti tryggt friðinn.