Búist er við að hægri flokkar á Spáni fái í kringum 175 til 184 sæti eftir þingkosningar á Spáni í dag. 176 sæti þarf til þess að tryggja sér meirihluta.
Kannanir sem birtar voru eftir að kjörstöðum var lokað sýna að Lýðflokkurinn (Partido Popular) gæti fengið á bilinu 129 og 134 sæti og pópúlíski þjóðernisflokkurinn Vox gæti fengið á bilinu 44 til 48 sæti.
Ekki er þó útséð með niðurstöður kosninganna en fyrstu niðurstöður birtast klukkan átta.
Skoðanakannanirnar eru ekki hefðbundnar útgönguspár líkt og við eigum að venjast heldur skoðanakannanir sem framkvæmdar voru fyrir þingkosningarnar. Ekki er leyfilegt að birta skoðanakannanir fimm dögum fyrir kosningar á Spáni. Fari svo að hægri flokkarnir tryggi sér meirihluta þykir líklegast að Alberto Núñez Feijóo, leiðtogi Lýðflokksins, verði næsti forsætisráðherra Spánar.
Kannanirnar eru í takt við skoðanakannanir sem birtar voru áður en bannið tók gildi sem sýndu að stjórn Pedro Sanchez og Sósíalistaflokks gæti fallið og að Lýðflokkurinn og Vox fengju meirihluta þingsæta. Hægri flokkarnir hafa ekki verið í meirihluta í átta ár.
Metkosningaþátttaka var í dag og er talið að hún hafi sjaldan eða aldrei verið meiri. Klukkan tvö eftir hádegi var kjörsóknin komin í 45,7 prósent, en á sama tíma í síðustu kosningum árið 2023 var kjörsókn 40,5 prósent.
BBC ræddi við stjórnmálafræðinginn Paolo Gerbaudo sem spáir því að kosningaþátttaka verði allt í allt 80%. Ekki liggur enn fyrir endanleg kosningaþátttaka.
Í síðustu þingkosningum var búið að telja 99% atkvæða um klukkan ellefu um kvöldið. Því má búast við því að niðurstöður liggi fyrir um miðnætti.