Mikil reiði hefur blossað upp á samfélagsmiðlum eftir að 32 ára sænskur knattspyrnuáhugamaður, Christian Zedig, var barinn alvarlega á aðdáendasvæði í Kaupmannahöfn þar sem stuðningsmenn höfðu safnast saman til að fylgjast með leikjum á heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu.
Atvikið átti sér stað á þriðjudagskvöld á svokölluðu fan zone-svæði við Íslandsbryggju, þar sem stórskjár hafði verið settur upp fyrir stuðningsmenn. Samkvæmt dönsku lögreglunni var sænskur ríkisborgari á fertugsaldri beittur grófu ofbeldi og fluttur á sjúkrahús með lífshættulega áverka.
Á samfélagsmiðlum hefur málið vakið mikla athygli, þar sem margir gagnrýna að sænskir fjölmiðlar hafi lítið fjallað um árásina.
Hjartnæm skilaboð eiginkonunnar
Eiginkona mannsins, Emilie Zedig, birti í dag átakanlega færslu þar sem hún lýsir því hvernig eiginmaður hennar hafi verið fullur tilhlökkunar að ferðast til Kaupmannahafnar með vini sínum til að horfa á leik Svía gegn Frökkum á risaskjá.
„Þú fékkst aldrei að sjá þann leik. Nokkrum klukkustundum áður en hann hófst hvarf öll gleðin og líf okkar snerist á hvolf á örfáum sekúndum,“ skrifar hún.

Í færslunni kemur fram að Christian liggi nú á gjörgæslu og að allt sem hægt hafi verið að gera hafi verið gert.
„Bráðum þarf ég að yfirgefa þig, að eilífu. Ég er gjörsamlega niðurbrotin og þetta særir svo ótrúlega mikið,“ skrifar hún enn fremur.
Orðalag færslunnar hefur orðið til þess að margir telja að ástand hans sé vonlaust eða að andlát kunni að vera yfirvofandi, en þegar þetta er skrifað hefur andlát hans ekki verið staðfest opinberlega.
Dönsk lögregla hefur birt mynd af meintum árásarmanni og leitar hans nú. Málið er til rannsóknar og ekki liggur enn fyrir hvað kveikti átökin.