Köldu vatni hefur verið komið á aftur á Ásbrú og á Keflavíkurflugvelli. Kaldavatnslaust var á svæðinu í um klukkustund.
Sigrún Inga Ævarsdóttir, upplýsingafulltrúi HS Veitna, segir svokallað þrýstingsfall hafa átt sér stað en enn sé til rannsóknar hvað olli því. Víðtæk bilun sem þessi sé afar óalgeng.
Þó að kalt vatn sé aftur komið á kunni enn að vera lítill vatnsþrýstingur hjá sumum í fyrstu. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir vatn aftur komið á í flugstöðinni.