Kærumál hafa tafið byggingu nýs Landspítala um hálft ár hið minnsta að sögn framkvæmdastjóra. Áfram er þó stefnt á að hann verði tilbúinn undir lok árs 2029.
Samkvæmt lögum um opinber innkaup eru verkefni Nýs Landspítala boðin út. Núna eru til dæmis í útboði upphengdar sjúkrasúlur og varaaflsvél fyrir nýtt sjúkrahús.
60 kærur í fyrra
Samkvæmt lögum geta fyrirtækin sem bjóða í verkið kært niðurstöðuna til kærunefndar útboðsmála. Kærugjald er rúmar 200 þúsund krónur.
Málum sem kærunefndin sinnir fer fjölgandi. Það sem af er ári hafa nefndinni borist svipað mörg mál og allt árið 2022 – eða 40. Árið 2024 bárust nefndinni 45 mál og í fyrra 60. Ef verkefni er kært þarf oft að stöðva framkvæmdina þar til bráðabirgðaákvörðun nefndarinnar liggur fyrir.
Tíminn sem það tók nefndina að svara til bráðabirgða og þannig oft úrskurða um hvort hefja mætti verkið að nýju var að meðaltali 67 dagar í fyrra og 47 dagar árið þar á undan.
Nefndin segir í svari til fréttastofu að lögð hafi verið áhersla á að stytta þennan tíma en fyrri part þessa árs hefur meðalsvartími nefndarinnar verið 22 dagar.
Endanleg niðurstaða málsins bíður svo úrskurðar, sem í fyrra tók hálft ár eða um það bil 180 daga.
Meiri kostnaður og tilheyrandi tafir
Í svari frá Gunnari Svavarssyni, framkvæmdastjóra Nýs Landspítala, segir að alls þurfi að bjóða út nærri 100 verk sem tengjast uppbyggingu meðferðarkjarnans.
Gunnar segir að kærumálum fari hlutfallslega fjölgandi. Nú þegar hafi komið upp kærumál sem hafi kostað tugi milljóna króna í beinan og óbeinan kostnað.
Þá séu áhrifin tafir og mögulegar seinkanir á afhendingu verkefna Nýs Landspítala.
Gunnar talar um talsverðar tafir taldar í mánuðum. Í samtali við fréttastofu segir hann sex mánuði hið minnsta í tafir vegna kærumála.
Enn sé þó stefnt á að meðferðarkjarninn verði tilbúinn í lok árs 2029 – til dæmis með svokölluðum viðaukasamningum við verktaka sem heimild er fyrir í innkaupalöggjöf upp að ákveðinni upphæð.