Bilun kom upp í kaldavatnsveitu HS Veitna á Ásbrú í Reykjanesbæ í kvöld. Sigrún Inga Ævarsdóttir, upplýsingafulltrúi HS Veitna, segir bilunina einnig ná til Keflavíkurflugvallar.
Íbúar á Ásbrú séu því án kaldavatns og þeir sem notist við varmaskipta til að hita vatn séu þar af leiðandi einnig heitavatnslausir. Ekkert vatn skili sér í brunahana.
Unnið sé að bilanaleit að svo stöddu. Svo víðtækar bilanir séu afar óalgengar. Ekki liggi fyrir hve langan tíma það geti tekið að koma vatninu aftur á.
Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir lítinn þrýsting á neysluvatnsstöð flugvallarins. Isavia annist brunavarnir í flugvélum og á flugbrautum. Slökkvibílar þeirra séu ávallt með fulla vatnstanka og brunavarnir því tryggðar að því leyti þrátt fyrir bilunina.
Þá sé flugvöllurinn einnig með vatnstank og kerfi sem haldi þrýstingi á slökkvikerfi flugstöðvarinnar. Brunavarnir Suðurnesja ábyrgist brunavarnir inni í flugstöðinni.