Sérstakar blómakörfur hafa prýtt Egilsstaði á sumrin í þrjátíu ár, Guðrún Sigurðardóttir handverkslistakona og blómaskreytir sem sinnt hefur körfunum er að ljúka við að koma þeim í stand fyrir sumarið og ætlar að leggja klippurnar á hilluna þegar þær eru tilbúnar.
Guðrún hefur á hverju vori undanfarna áratugi varið ómældum tíma í að koma upp blómakörfunum, planta í þær og standsetja.
„Á meðan við erum að setja í körfurnar og gera þær upp þá hefur þetta verið fullt starf frá morgni til kvölds og síðan hef ég reynt að halda þeim við,“ segir Guðrún.
Körfurnar voru fyrst settar upp í tilefni 50 ára afmælis Egilsstaðabæjar 1997 - þáverandi garðyrkjustjóri hjá bænum kom þá að máli við Guðrúnu, sem rak á þeim tíma blómabúð, og bað hana um að útfæra skreytingu í tilefni afmælisins. Hún hugsaði málið og datt í hug blómakarfa. „Vegna þess að í búðinni hjá mér voru blómakörfur vinsælastar í svona stórafmæli og merka viðburði.“
Mál að linni
Körfurnar eru einkennandi fyrir bæjarmyndina og vekja athygli þeirra sem hjá fara. Þeir sem vinna í húsunum í kringum körfurnar segja Guðrúnu gjarnan frá straumi ferðamanna með myndavélar.
„Ég varð áttræð í vetur og mér finnst það orðin mjög há tala,“ segir Guðrún sem ætlar að segja þetta gott þegar körfur ársins eru tilbúnar. „Ég held að það sé nóg komið og ágætt að einhverjir aðrir taki við.“
Hún segist tilbúin að vera innan handar ef körfurnar eigi áfram að prýða bæinn, það sé þó nú í annarra höndum.