Þyrla og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Gró og TF-Sif, voru kölluð út í kvöld vegna veikinda farþega um borð í skemmtiferðaskipi á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands.
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, samskiptastjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Skipið var um miðja vegu milli Vestfjarða og Grænlands í norðvesturátt frá Vestfjörðum. Vegna fjarlægðarinnar frá landi þurfti bæði þyrlu og eftirlitsflugvél í verkefnið. Eftirlitsflugvélin annast fjarskipti á leiðinni. Ein þyrla er til viðbragðsstöðu borginni.
Skipið var í meira en 150 sjómílna fjarlægð frá landi þegar óskað var eftir aðstoð. Á slíkum slóðum sé takmörkuð aðstoð í boði og því hafi raunhæfasti kosturinn verið að kalla út Landhelgisgæsluna frá Íslandi, samkvæmt Ásgeiri.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send frá Reykjavík á áttunda tímanum. Ásgeir segir að það hafi tekið um eina klukkustund og 40 mínútur að komast að áfangastað og að búið væri að sækja veika farþegann, sem er eldri borgari. „Það gekk allt vel og þyrlan er á leiðinni til baka.“ Hann segir að gert sé ráð fyrir því að þyrlan lendi á Landspítalanum seinna í kvöld.