Maður á atvinnuleysisbótum var sviptur bótarétti í þrjá mánuði og krafinn um endurgreiðslu þar sem Vinnumálastofnun taldi ljóst að hann hefði ekki upplýst um tekjur sem hann hefði hlotið fyrir atvinnurekstur samhliða bótagreiðslum. Endurgreiðslukrafan nam um 1,9 milljónum króna en átti þó rætur að rekja til mistaka sem urðu hjá Skattinum. Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti þriggja mánaða sviptingu bótaréttar og endurgreiðslukröfu upp á rétt rúmar 22 þúsund krónur.
Fékk tæplega tveggja milljón króna endurgreiðslukröfu vegna mistaka hjá Skattinum