Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir ekki vera ljóst hvort tölvuþrjótarnir hafi komist yfir viðkvæm gögn eða persónuupplýsingar í umfangsmikilli tölvuárás á þjónustukerfi Reykjavíkurborgar á miðvikudag.
Hann segir þrjótana ekki hafa verið byrjaða að stela gögnum eða dulkóða þau, heldur hafi tekist að stöðva þrjótana í fyrstu skrefum árásarinnar.
„Þannig það virðast ekki vera margar vísbendingar um að það séu mikil gögn þarna undir.“
Tekist hafi að stöðva tölvuþrjótana í fyrstu skrefum tölvuárásarinnar. Þá hafi þeir enn verið að kortleggja kerfin og leita sér leiða til að fara áfram.
„Við förum í nokkuð harkalegar aðgerðir frá byrjun og tökum kerfið úr rekstri til að minnka skaða eins og hægt er,“ segir Anton.
Brotist var inn í skýjakerfi Reykjavíkurborgar, sem tengt er öðrum kerfum á Íslandi sem tölvuþrjótar komust einnig inn í.
Anton segir að í framhaldinu hafi Syndis farið í að slíta þær tengingar en enn sé í rannsókn hverjir inngangspunktarnir voru.
„Gæti verið allt frá litlum hópi upp í miklu stærri aðila“
Anton segir að árásin gæti hafa komið frá hvaða landi eða löndum sem er. Hún gæti jafnvel hafa komið í gegnum heimatengingar fólks sem hafði ekki hugmynd um að búnaður þess hefði verið notaður til árása.
„Við vitum ekki alveg stærðina á þessu en þetta [árásin] gæti verið allt frá litlum hópi upp í miklu stærri aðila.“
„Gervigreindin í dag er sú að tveir aðilar geta valdið skaða sem þurfti fimmtíu í fyrir 6 eða 8 vikum, þannig að við erum að horfa á svolítið annan veruleika í þessu,“ segir Anton.
Hann segir vinnuna við að koma kerfunum aftur í gang ganga vel. Verið sé að forgangsraða mikilvægustu verkefnunum.