Mbl greinir fyrst frá og hefur eftir sjónarvotti sem sá til sjúkrabíla og sérsveitarbíla aka upp Ártúnsbrekkuna. Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, staðfestir að sérsveitin hafi tekið þátt í útkalli.
Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu staðfestir að einn sjúkrabíll hafi verið kallaður út en honum snúið við.