Landhelgisgæslan skoðar að taka þyrlu á leigu til bráðabirgða þar sem það gæti tekið eitt til tvö ár að fá réttu björgunarþyrluna í verkið. Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Landhelgisgæslunni, segir að leit að bráðabirgðaþyrlu sé þegar hafin.
„Um leið og við fengum þessar fréttir í hádeginu í dag, að það stæði til að bæta við fjórðu vélinni, þá fórum við af stað og byrjuðum undirbúning að þessu máli,“ segir hann.
„Við vorum svo sem búin að undirbúa okkur fyrir og erum búin að kanna markaðinn og við vitum af vélum sem gætu mögulega verið lausar. Þannig að núna erum við bara að kanna betur hvort, hvernig staðan á þessum vélum er. Vonandi skýrast þessi mál nú bara fljótlega á næstu dögum svona já, hvaða vélar eru í boði.“
Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að flýta því ferli að Landhelgisgæslan fái fjórðu þyrluna til viðbótar við þær þrjár sem hún hefur nú til umráða. Ákveðið var að þyrlan yrði staðsett á Akureyri. Til stendur að setja 600 milljónir í flugskýli fyrir þyrluna og hefja framkvæmdir strax á næsta ári.
Þegar skipsskaðinn varð á miðvikudag var einungis ein þyrla tiltæk og áhöfn hennar setti sig í mikla hættu þegar hún flaug mun lengra en heimilt er án þess að önnur þyrla væri til taks.
Auðunn segir að ekki sé vitað hvenær bráðabirgðaþyrla gæti verið laus en vonast er til að hún gæti fengist áður en endanleg þyrla finnst.
„Við þurfum að fara að kanna þann markað bara, það liggur svo sem ekki nákvæmlega fyrir hvað er í boði. Þessar leitar- og björgunarvélar liggja ekkert á lausu en við munum setja þessa vinnu í fullan gang og sjá hvað er til,“ segir Auðunn.