Kyrrðar- og samverustundin hófst klukkan fimm síðdegis en Fossvogskirkja verður opin fram eftir kvöldi fyrir öll þau sem eiga um sárt að binda vegna slyssins. Þar mun fólki gefast kostur á að eiga kyrrðarstund, biðjast fyrir, minnast þeirra sem fórust eða einfaldlega eiga samveru með öðru fólki sem upplifir sorg og óvissu í kjölfar atburðanna.
Nokkrir tugir manna hafa lagt leið sína í Fossvogskirkju í kvöld. Upphaflega átti athöfnin að vera í kapellunni en var færð yfir í stærra rými við hliðina, þ.e. kirkjuna sjálfa. Meðal þeirra sem hafa lagt leið sína er Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands. Hann ræddi við annað fólk á svæðinu. Þá mætti Ásgeir Elí Gerðarson, hásetinn átján ára, sem veitti Vísi viðtal í tak um lífsreynsluna á miðvikudag.
Kærkomið að sjá hver annan
Dagur Fannar Magnússon prestur í Fríkirkjunni og einn þeirra sem standa að viðburðinum segir skipverjana suma ekki hafa sést frá því í þyrlunni.
Hann segir að öllu máli skipti á stundum sem þessum að koma saman.
„Nærvera skiptir svo miklu máli. Að fólk komi saman finni stuðning hvort frá öðru, komi saman í þessum kærleika og samstöðu sem virðist blessunarlega fylla alla þjóðina þegar eitthvað gengur á,“ segir Dagur.
Nærveran skipti öllu
Kristrún Ýr Einarsdóttir er í stjórn STLÍ. Hún segist hafa fundið fyrir þörfinni á samkomu sem þessari þar sem fólk getur komið saman óháð trú og lífsskoðun.
„Hræðilegur atburður sem átti sér stað sem snertir alla þjóðina, mikilvægt að vera saman í nærverunni óháð því hver við erum, hvaðan við komum hverju við trúum eða trúum ekki,“ segir hún.
Allir syrgi á ólíkan hátt.
„Það er þörf fyrir nærveru, koma saman, deila þessari upplifun, deila þessum tilfinningum sem við erum að finna öll saman. Nærveran skiptir mestu máli, að geta komið saman og talað um hluti sem eru erfiðir,“ segir Kristrún.