Hæstiréttur Kanada úrskurðaði í dag að bann yfirvalda í Quebec-ríki við að opinberir starfsmenn skarti trúartáknum standist stjórnarskrá að mestu.
Lögin eru kölluð á ensku „Bill 21“, eða lög 21. Þau voru samþykkt á fylkisþinginu í Quebec árið 2019 á grundvelli sérstakt fráviksákvæðis í stjórnarskrá Kanada. Það gerir stjórnvöldum kleift að fara á svig við ákveðin réttindi, til dæmis trúfrelsi. Lögin eiga til dæmis við um lögreglumenn, saksóknara, lögfræðinga sem starfa fyrir fylkið, aðstoðarskólastjóra og kennara. Þá er þingmönnum bannað að hylja andlit sitt við störf.
Úrskurðarins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda er hann talinn geta verið fordæmisgefandi ekki aðeins fyrir Quebec heldur allt Kanada, einkum hvað varðar það hve langt sé hægt að ganga á grundvelli þessa fráviksákvæðis.
Segir lög tryggja trúfrelsi
Meðal þeirra sem mótmæltu þessum lögum voru mannréttindasamtök og samtök múslima í Kanada, en það var skólaráð Montreal sem höfðaði málið gegn Quebec-fylki. Rökin beindust meðal annars að því að lögin væru sérstaklega íþyngjandi fyrir múslimskar konur. Áfrýjunardómstóll hafði staðfest réttmæti laganna og Hæstiréttur var sammála því mati.
Í úrskurði Hæstaréttar segir að notkun Quebec á fráviksákvæðinu sé lögmæt, nema bann við því að kjörnir fulltrúar hylji andlit sitt. Sá hluti brjóti á lýðræðislegum réttindum til að bjóða sig fram sem kjörinn fulltrúa, og fráviksákvæðið heimili ekki að farið sé á svig við þau réttindi. Þá segir dómurinn að í lögunum felist að Quebec ætli sér að viðhalda trúfrelsi í frjálsu og fullvalda samfélagi. Dómurinn þýðir meðal annars að múslimar mega ekki vera með hijab á höfðinu og kristið fólk má ekki bera kross um hálsinn.
Fleiri ríki hafa samþykkt lög á grundvelli þessa stjórnarskrárákvæðis, þar af tvö vegna trans barna. Saskatchewan samþykkti til dæmis lög sem skylduðu skóla til að fá samþykki foreldra áður en börn yngri en 16 ára eru skráð í öðru kyni. Í Alberta var ákvæðið svo notað til að banna trans stúlkum að taka þátt í kvennaíþróttum og að hormónameðferð væri aðeins heimil börnum yngri en 16 ára.