Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að hafna kröfu manns um að lögregla skili honum bifreið sem lagt var hald á í október. Maðurinn á að baki langan sakaferil vegna umferðarlagabrota og hefur verið sviptur ökuréttindum ævilangt.Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á bifreið mannsins, af gerðinni Skoda Octavia, þann 19. október síðastliðinn en hann er grunaður um að hafa ekið sviptur ökurétti í fimm tilvikum á innan við þremur vikum í haust.
Fær ekki Skódann sinn aftur – Segist þurfa hann svo aðrir geti skutlað honum