„Stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna harmar og biðst afsökunar á fordómafullum og særandi ummælum sem birtust í nafni FÍM í dagblöðum og í bréfaskriftum til opinberra aðila í garð listakonunnar Nínu Sæmundsson vegna verksins Hafmeyjunnar, sem sett var upp í Reykjavíkurtjörn árið 1959,“ segir í tilkynningu sem birtist á vef félagsins í dag.
Nína (1892–1965) var fyrst íslenskra kvenna til að gera höggmyndalist að ævistarfi og er eitt hennar þekktasta verk var Hafmeyjan sem situr í Reykjavíkurtjörn en hún var afhjúpuð í ágúst 1959 en var sprengd skömmu síðar á nýársnótt 1960.
Höggmyndin, sem hafði verið reist fyrir tilstilli bæjarfélagsins, hafði verið afar umdeild. Sumum þótti listaverkið ljótt eða fannst það ekki sæmandi að berbrjósta hafmeyja væri höfð á stalli í tjörninni. Öðrum þótti kvartmilljónar króna verðmiðinn of dýr.
Greinilega hefur verkið ekki síður verið umdeilt meðal myndlistarmanna. Í tilkynningu FÍM er annars vegar vísað til ályktunar aðalfundar FÍM árið 1959, sem send var bæjarráði Reykjavíkur, og hins vegar yfirlýsingar sýningarnefndar FÍM sem birtist í dagblöðum sama ár.
Í þeim ummælum var vísað til höggmyndarinnar sem þeirrar „höggmyndar sem óprýðir tjörnina“ og einnig rætt um „hlut þann sem hefur verið komið fyrir í tjörninni“.
„Nínu Sæmundsson barst því miður aldrei afsökunarbeiðni vegna þessara meiðandi orða í hennar garð,“ skrifar stjórn FÍM.
„Þótt langt sé um liðið frá því að þessi ummæli féllu breytir það ekki því að þau lýsa fordómum og hroka gagnvart listakonunni og verkum hennar. Slík framkoma og orðræða samræmist á engan hátt þeim gildum sem Félag íslenskra myndlistarmanna stendur fyrir í dag.“
Þá segist stjórn FÍM vilja þakka Viktoríu Guðnadóttur og dr. Yndu Eldborg, sýningarstýrum sýningarinnar „Nína, okkar kærasta Nína“ í Listasafni Reykjanesbæjar, fyrir að vekja athygli á og skapa umræðu um listakonuna, sem hafi mætt harkalegu mótlæti samtíðar sinnar.
„Við þökkum ykkur fyrir að gefa verkum Nínu Sæmundsson þann sess og þá athygli sem þau eiga sannarlega skilið.“