Kristinn opnar sig í færslu á Facebook.
„Í dag flagga ég í hálfa stöng og mun hafa hann þar í þrjá daga og þrjár nætur fyrir þá þrjá sem við misstum. Ég vil votta virðingu mína og samúð til fjölskyldu skipsbræðra minna JASEK, ADDA og Eggerts sem fórust í þessu hræðilega sjóslysi.“
Eiginkona Kristins tjáði sig á Facebook í gær og þakkaði lífsbjörgina. Hún sagðist eiga erfitt með að finna réttu orðin.
„Í dag er ég innilega þakklát fyrir að hafa hann heima hjá mér og börnunum okkar og með sorg í hjarta fyrir fjölskyldurnar þar sem ástvinir munu ekki koma heim,“ sagði Patrícia Mikulová og bætti við að hún vildi þakka öllum þeim sem komu að björgunaraðgerðunum kærlega fyrir þeirra framtak.
Þakkar þyrluáhöfn og þjálfun
Myndband sem fór í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum strax snemma á miðvikudagskvöld sýndi Kristin tilkynna konu sinni að skipið væri að sökkva. Þar heyrðist hann segja „ég elska þig ástin mín, við erum að sökkva“ á ensku.
Kristinn stígur fram í dag og segist til þessa ekki hafa viljað ræða slysið við fjölmiðla. Ekki enn sem komið er.
„Því ég er sjálfur bara að ná áttum og njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar en okkar saga skiptir máli og hún verður sögð. Ég vil þakka fyrst og fremst þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar og slysavarnaskóla sjómanna fyrir þjálfun sem bjargaði lífi okkar. Áhöfnin mín stóð rosalega vel saman í þessum erfiðu aðstæðum og gerði allt rétt og unnu allir sem einn og það er ástæðan fyrir því að svo margir lifðu af.“
Háseti lýsti aðstæðum
Ásgeir Elí Gerðarson, átján ára háseti á Jökli, lýsti atburðunum á miðvikudag af mikilli yfirvegun í viðtali á Vísi í dag. Þar kom fram að hann hefði rétt öðrum skipverjum björgunargalla og verið á meðal þriggja sem þurftu að klæða sig í æfingagalla.
„Ég hugsaði eiginlega ekkert út í sjálfan mig. Áður en þyrlan kom, ekki um klukkutíma áður en þyrlan kom, var ég búinn að vera að halda utan um einn háseta sem var bara skjálfandi og ég var endalaust bara að segja: Heyrðu, þú ert nagli, þú getur þetta, þú veist, þú lifir þetta af, hjálpin er á leiðinni,“ sagði Ásgeir Elí.
Þá hefði hann vísað á félaga sína þegar sigmaður seig niður úr þyrlu Gæslunnar og velti fyrir sér hvern ætti að hífa upp í þyrlu.
Sjá má viðtalið í heild að neðan.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar ræddu við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í dag. Þar tilkynnti forsætisráðherra að flýtt yrði að leigja eða kaupa fjórðu þyrluna fyrir Landhelgisgæsluna sem yrði staðsett á Akureyri. Fjármálaráðherra sagði að fundið yrði fé til að fjármagna það. Innviðaráðherra sagði að rýna yrði vel hvers vegna björgunarbátar hefðu ekki nýst sem skildi.