„Það er óbreytt staða, Syndis er að vinna með Reykjavíkurborg með við það að endurreisa þjónustu þeirra. Síðan er það sem fókusinn hefur aðallega verið að bregðast við þessari þróun og árás,“ segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna.
Á miðvikudag varð kerfi Reykjavíkurborgar fyrir netárás. Fjöldi rafrænna þjónustukerfa var tímabundið tekinn úr sambandi, þar á meðal rafrænar umsóknir vegna fjárhagsaðstoðar. Í skriflegu svari frá Reykjavíkurborg við fyrirspurn fréttastofu sem barst í gær segir að ekki liggi fyrir nákvæmar upplýsingar um hvaða kerfum var lokað. Þá lá heldur ekki fyrir hvort árásaraðilarnir hefðu komist yfir einhvers konar gögn, þar á meðal trúnaðargögn.
Í tilkynningu frá borginni segir að stefnt sé að því að koma sem flestum rafrænum þjónustukerfum aftur í gagnið í dag og um helgina.
„Borgin tók þjónustukerfin tímabundið úr sambandi til að hefta útbreiðslu árásarinnar og verja kerfi og gögn. Starfsfólk vinnur nú með sérfræðingum Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS að því að yfirfara kerfin og tryggja að óhætt sé að taka þau aftur í notkun. Vinnan felur meðal annars í sér að skipta um öll lykilorð og aðgangslykla í viðkomandi kerfum,“ segir í tilkynningunni.
Runólfur segir að mestur tími hafi farið í að verjast árásinni en verkefni næstu vikna og mánaða sé að greina nákvæmlega hvaðan árásin kom.
Fylgst með þróuninni
Í nýrri tilkynningu frá CERT-IS og Almannavörnum segir að viðbúnaðarstig vegna netógna sé áfram á óvissustigi. Það muni, að öllu óbreyttu, haldast þannig fram yfir helgi og verður næsta stöðumat gefið út fyrri part mánudags.
„Fylgst verður með þróun mála yfir helgina og ef staðan breytist eða upp koma alvarleg atvik verður gefin út tilkynning þess efnis og staðan endurmetin,“ segir í tilkynningunni.
Runólfur segir að óvissustigið snúi að skilgreindum ómissandi upplýsingaviðmiðum sem eru bæði stofnanir og einkarekin fyrirtæki sem sjá um grunnþjónustu í samfélaginu. Það séu til að mynda rafveitukerfi, veitukerfi og alls konar upplýsingar sem til að mynda megi finna hjá Stjórnarráðinu.
„Við viljum að öll þau fyrirtæki sem starfa innan þessa geira bregðist við og það hefur gengið mjög vel. Það er gott samstarf við þau þannig að við endurmetum stöðuna reglulega yfir helgina og áfram í næstu viku,“ segir Runólfur.
Síðustu daga hafa netöryggissérfræðingar ekki orðið varir við beinar netárásir heldur svokallaðar þreifingar. Runólfur hvetur fyrirtæki og almenning til að vera á varðbergi varðandi netsvik.
Magni Sigurðsson, forstöðumaður netöryggisvarna hjá CERT-IS, sagði í viðtali í gær að mikil stigmögnun væri á sviði netsvika. Stór hluti árásanna væri vegna opinna gervigreindartóla sem árásaraðilar nýta sér til að finna veikleika í kerfum og brjótast inn í þau.
Runólfur tekur fram að gervigreindarþróunin eigi líka við netsvik og því sé tilefni til að vera á varðbergi þegar kemur að samskiptum á netinu.
Fréttin hefur verið uppfærð með tilkynningu frá Reykjavíkurborg.