Sex af hverjum tíu landsmönnum fóru til útlanda í sumar – sem er svipað hlutfall og síðustu ár. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallups um ferðavenjur Íslendinga í sumar.
Áratuginn fram að heimsfaraldri COVID jukust ferðalög landsmanna til útlanda. Árið 2010 sagðist þriðji hver Íslendingur hafa ferðast til útlanda það sumarið en hlutfallið hefur vaxið jafnt og þétt síðan þá. Utanlandsferðir lágu svo nánast niðri í faraldrinum en hafa haldist svipað margar frá árinu 2022.
Ef horft er til kyns voru konur líklegri til þess að hafa ferðast til útlanda en 63% þeirra sögðust hafa gert það. 55% karla sögðust hafa ferðast til útlanda í sumar.
7 af hverjum 10 ferðuðust innanlands
Hlutfall þeirra sem ferðuðust innanlands í sumar var hærra eða sjö af hverjum tíu landsmönnum. Það er svipað hlutfall og síðustu áratugi ef frá er talinn tíminn á meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst.
Að meðaltali gisti fólk 16 nætur á ferðalögum sínum til útlanda í sumar og níu nætur á ferðum sínum innanlands.