Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri Jökuls ÞH, vottar fjölskyldum látinna skipsbræðra sinna virðingu og samúð sína. Hann segist flagga í hálfa stöng í dag og ætlar að gera það í þrjá daga og þrjár nætur fyrir félaga sína.
Skipið fórst á miðvikudaginn. Fjórtán komust lífs af en Jacek Belina, Eggert Ellertsson og Aðalsteinn Steinþórsson týndu lífi.
„Ég hef ekki viljað tala við fjölmiðla því ég er sjálfur að ná áttum og njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar. Okkar saga skiptir máli og hún verður sögð,“ skrifar Kristján Hrannar í færslu á Facebook.
Hann þakkar þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sem kom skipverjum til bjargar og Slysavarnaskóla sjómanna fyrir þjálfun sem bjargaði lífi þeirra.
„Áhöfnin mín stóð rosalega vel saman í þessum erfiðu aðstæðum og gerðu allt rétt og unnu allir sem einn og það er ástæðan fyrir því að svo margir lifðu af.“