Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, lögðu tillöguna fram við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs en þau segja yfirvinnugreiðslur í miðlægri stjórnsýslu bæjarins um 42 prósentum ofan á önnur laun sem jafngildi tæpum 30 prósentum af heildarlaunum.
Tillaga þeirra var tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag en þar tók Jónas sérstaklega fyrir stafræna þróun og miðlun og sagði að þar starfaði um 15 manns og árlegar yfirvinnugreiðslur næmu um 80 milljónum króna án launatengdra gjalda. Jónas spurði hvers vegna væri svo mikil þörf fyrir yfirvinnu á þessari deild. Hann tók fram að föst yfirvinna gæti átt rétt á sér en greiðslurnar yrðu að endurspegla vinnuframlag.
Bæjarstjóri vill heyra í stéttarfélögunum
Ásdís sagði föstu greiðslurnar meðal annars endurspegla ábyrgð, álag og þá kröfu að fólk gæti unnið utan hefðbundins vinnutíma. Þegar bærinn greiddi eingöngu fyrir skráða yfirvinnutíma hefði tímunum fjölgað og tók Ásdís fram að hún vildi heyra afstöðu stéttarfélaganna áður en launakerfinu yrði breytt.
Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins, lagði einnig fram tillögu um fasta yfirvinnu við fyrri umræðu um fjárhagsáætlunina í nóvember. Hann taldi of hátt að föst yfirvinna næmi um 30 prósentum af launum og vildi kanna hvaða deildir þyrftu á henni að halda. Við síðari umræðuna dró hann tillöguna til baka og sagði að áður en sparnaður yrði færður í fjárhagsáætlun þyrfti að liggja fyrir hversu mikið myndi sparast.
Átta bæjarfulltrúar greiddu atkvæði gegn tillögu Samfylkingarinnar, tveir með og einn sat hjá. Samfylkingin hafði áætlað að yfirvinnuþakið og minni spjaldtölvukaup skiluðu samtals um 219 milljónum króna. Um 85 milljónir áttu að fara í niðurgreiðslu skammtímaskulda og afganginn vildi flokkurinn meðal annars nota til að hækka systkinaafslátt í leikskólum og bjóða sumarfrístund í fleiri skólum.