Fjöldi stuðningsmanna franska fótboltaliðsins Marseille réðst á hóp stuðningsmanna búlgarska liðsins Levski Sofia skömmu fyrir leik liðanna í Evrópudeildinni, sem fór fram á heimavelli Marseille. Fimm stuðningsmenn búlgarska liðsins þurftu að leita á slysadeild - einn þeirra var með höfuðáverka og annar fór úr axlarlið. Tugir til viðbótar slösuðust.
Samkvæmt fregnum fjölmiðla þustu nokkur hundruð stuðningsmenn Marseille að þeim hluta stúkunnar sem 500 stuðningsmenn Levski voru í og sló þá í brýnu á milli þeirra. Hluti stuðningsmanna Marseille huldi andlit sitt og var með járnstöng að vopni. Flugeldum var einnig skotið í átt að þeim búlgörsku. Nokkrir þeirra voru eltir uppi af þeim frönsku áður en þeir náðu að komast í sinn hluta stúkunnar. Ónafngreindur stuðningsmaður Marseille segir að þetta hafi verið svar við ögrandi hegðun Búlgaranna.
Lögreglunni tókst að koma ró á áhorfendur og leikurinn hófst á tilsettum tíma. Marseille vann leikinn 1-0. Auk stuðningsmannanna meiddust tveir lögreglumenn minni háttar. Enginn var handtekinn en saksóknari í Marseille hefur hafið rannsókn á tildrögunum.
Emmanuel Macron forseti Frakklands hefur fordæmt ofbeldi sem beindist að búlgörskum stuðningsmönnum. Líklegt er að Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) grípi til einhvers konar refsingar gagnvart franska félaginu.