Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi þyrlulæknir, segir björgun skipverjanna af Jökli ÞH hafa verið þrekvirki. „Mér finnst þetta algjörlega ótrúlegt.“ Næstum allt hafi þurft að ganga upp og viðbrögð að vera rétt til að bjarga sjómönnunum.
Jökull sökk á miðvikudaginn um 60 sjómílur austur af Íslandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór lengra út á sjó en hún mátti og áhöfn hennar hætti lífi sínu til að bjarga 17 úr sjónum. Fjórtán þeirra komust lífs af.
„Mér þykir mjög mikið um framlag sigmanns sem fór 16 ferðir niður að sækja menn og það finnst mér mikið þrekvirki,“ segir Alma.
Alma starfaði lengi sem þyrlulæknir. Hún segir að fyrsta útkall hennar hafi verið að síga niður í togara um miðja nótt í vondu veðri og tíu metra ölduhæð. „Mér er mjög minnisstætt hvað hafið var ógnvekjandi.“
Blm: Er ekki hreinlega ótrúlegt að þarna skuli hafa 14 mannslíf bjargast við þessar aðstæður?
„Mér finnst það. Ég átti ekki, eða þorði ekki að vona með svona góðri niðurstöðu. Þarna eru gríðarlega margir þættir sem leggjast á eitt. Sjálf þekki ég hversu mikil fagmennska er hjá Landhelgisgæslunni og hversu þar vinnur öflugt fólk. Það er margt – eiginlega allt – sem þurfti að ganga upp.“