Eldur kviknaði á bæ að Skálateigi í Norðfjarðarsveit í dag. Þetta staðfestir fulltrúi slökkviliðsins í Fjarðabyggð. Hann segir slökkvilið enn á vettvangi en að búið sé að slökkva eldinn. Ekki sé frekari upplýsingar að veita að svo stöddu.
Að sögn sjónarvotts virðist hafa kviknað í skúr og nokkrir menn hafi staðið fyrir utan. Á myndum má sjá mikinn og svartan reyk leggja frá eldinum.