„Allar viðræðurnar eru byggðar á því að við ætlum að ganga inn. Það eru allir úti í Brussel sem telja að við séum að biðja um inngöngu. Ef íslensku ráðherrarnir ætla að fara til Brussel og segja: „Við ætlum bara að skoða þetta og sjá til“, þá verður bara hlegið að Íslandi.“
Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Hann tók til máls á stofnfundi hreyfingarinnar Áfram Ísland síðdegis. Hún berst gegn því að gengið verði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Vægi Íslands væri lítið
Ólafi finnst tilraun gerð til að sannfæra Íslendinga um að ekkert sé vitað um Evrópusambandið. „Og að það þurfi að fara í einhvern könnunarleiðangur.“
En honum þykir óskynsamlegt að Ísland gangi í ESB þar sem „fjarlægar valdastofnanir eiga að fara að ráða miklu um hvað við gerum hér á Íslandi.“
„Við erum að óska eftir inngöngu“
„Það er misskilningur að þetta sé bara einhver könnunarleiðangur,“ segir hann.
Viðræðurnar, fari þær fram, yrðu byggðar á formlegri umsókn um aðild að Evrópusambandinu sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur lagði fram og var afhent Evrópusambandinu formlega.
„Þetta er ekki einhver orðaleikur eða bara að skoða málin. Þetta byggist á því að við erum að endurvekja það að við erum að óska eftir inngöngu í Evrópusambandið,“ segir Ólafur Ragnar.