Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna austan hvassviðris á Suðurlandi. Hún tekur gildi klukkan 6 í fyrramálið og varir fram yfir hádegi.
Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við 13-18 metrum á sekúndu og „mjög snörpum vindhviðum, allt að 30 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum“ frá því seint í nótt og fram yfir hádegi.
Á Reykjanesi er búist við allt að 25 m/s hviðum á Reykjanesi í kringum hádegi á morgun.
Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni.