Bandaríski tæknirisinn Microsoft hyggst segja upp 4.800 starfsmönnum á næstunni. Með uppsögnunum missa um tvö prósent allra starfsmanna fyrirtækisins á heimsvísu vinnuna.
Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að stærstu breytingarnar verði innan tölvuleikjadeildar Xbox, þar sem um 3.200 störf verða lögð niður á næstu mánuðum. Uppsagnirnar eru þær umfangsmestu í sögu Xbox.
Forsvarsmenn Microsoft segja uppsagnirnar hluta af endurskipulagningu fyrirtækisins og auknum fjárfestingum þess í þróun gervigreindar, gagnaverum og tölvuinnviðum.
Amy Coleman, framkvæmdastjóri hjá Microsoft, segir fyrirtækið þurfa að laga sig að breyttum aðstæðum og hraðri framþróun í tæknigeiranum. Hún segir uppsagnirnar ekki til þess gerðar að skipta starfsmönnum út fyrir gervigreind þrátt fyrir að sjálfvirknivæðing hafi án efa áhrif á starfsemi fyrirtækisins.
Forstjóri Xbox, Asha Sharma, segir rekstur deildarinnar ekki hafa staðið undir sér að undanförnu. Því sé endurskipulagning nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að snúa honum til betri vegar.