Aðild að Evrópusambandinu myndi opna gríðarlega stóra markaði fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir. Mikilvægt er að styðja markvisst og myndarlega við íslenskan landbúnað. Aðild byði einnig upp á að stuðningur fengist við uppbyggingu innviða á Íslandi, sem í mörgum tilfellum uppfylla ekki evrópska staðla, t.a.m. þjóðvegirnir úti á landi. Þá viljum við velferðarsamfélag að evrópskum sið fremur en bandarískt samfélag sem takmarkar mjög rétt almennings t.d. til fæðingarorlofs, sumarfrís og veikindadaga.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Evrópusambandið styður sérstaklega við dreifðar byggðir – ekki síst brothættar byggðir