Fjölskylduhátíðinni Einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina hefur vaxið fiskur um hrygg. Í ár er von á metfjölda í bæinn í tengslum við hátíðina - og af því tilefni hefur forvarnarteymi bæjarins sent tölvupóst á forráðamenn allra barna á aldrinum 14-16 ára þar sem ábyrgðarhlutverk foreldra er ítrekað í forvarnarstarfi.
Halldór Kristinn Harðarson er einn skipuleggjenda hátíðarinnar og segir hann gott samstarf vera milli skipuleggjenda, bæjaryfirvalda, forvarnaraðila og lögreglu.
„Þetta var í rauninni eitthvað sem allir voru að hugsa. Þetta var ekkert eitthvað að einhver leitaði til annars. Það voru allir sammála um að þetta verði bærinn þar sem öllum líði vel en allir séu bara í toppmálum. Þannig þetta er samvinnuverkefni og við fögnum umræðunni,“ segir Halldór Kristinn.
Ein með öllu er fjölskylduhátíð. Það var Halló Akureyri ekki
Hátíðarhöld á Akureyri um verslunarmannahelgina hafa verið með ýmsu sniði en frá árinu 2008 hefur Ein með öllu verið skipulögð sem fjölskylduhátíð. Akureyrarbær lagðist gegn hátíðum á borð við Halló Akureyri á tíunda áratug síðustu aldar, sem hafði þann stimpil á sér að höfða til partýstands ungmenna. Gengu bæjaryfirvöld það langt að setja 23 ára aldurstakmark á tjaldsvæði. Síðan þá hefur fjölskylduhátíðin stækkað en von er á gestum á öllum aldri.
„Hátíðin gekk mjög vel í fyrra og við erum búin að vera smá tíma að byggja hana upp. Við vorum mjög sátt við hátíðina í fyrra. Við heyrðum útundan okkur að margir stefni norður. Við erum bara að gera eins vel og við getum til að taka á móti öllum sem vilja koma norður um Versló. En við verðum að gera það vel og vandlega,“ segir Halldór Kristinn.