Enginn á landinu og jafnvel þótt víðar væri leitað er með fjóra stjörnusjónauka uppstillta fyrir utan heima hjá sér nema Sævar Helgi Bragason, sem nú er sérstakur ráðgjafi stjórnvalda um almyrkvann 12. ágúst.
Á vefsíðu Stjörnu Sævars, eins og hann er stundum kallaður, solmyrkvi2026.is er hægt að finna allra handa upplýsingar um almyrkvann og allt sem honum tengist. Til dæmis er hægt er að hægt slá upp heimilisfangi til þess að athuga hvort almyrkvinn sést þar, klukkan hvað og hve lengi þann 12. ágúst.
„Ég ætla bara að vera hér heima,“ segir hann, „héðan fæ ég óheft útsýni til vesturs og ég fæ almyrkva hér í 57 sekúndur.“
Er ekki betra að fara þangað þar sem hann er kannski mínútu lengri?
„Það fer eftir því hvernig þú lítur á það. Jú, þú færð eina gullfallega mínútu í viðbót, ekki spurning. Og það er algerlega þess virði. En af að veðrið er svona þar sem þú átt heima þá er besti staðurinn bara heima. Þá líka losnar maður við umferð sem verður gífurleg. Og það mun ekki taka mjög stuttan tíma vestur á Snæfellsnes sérstaklega á leiðinni til baka. Þannig að til að losna við það svolítið þá myndi ég mæla með því að fólk sé heima ef það er gott veður það er að segja.“
Og rétt staðsett?
„Og rétt staðsett, já.“
Margir muna eflaust eftir tilkomumikla deildarmyrkvanum á sólu 15. mars 2015. Fjölmenni fylgdist með og skólanemendur fylktust út með nauðsynjabúnaðinn sólmyrkvagleraugu. Þótt almyrkvinn vari stutt núna þá varir deildarmyrkvi lengur og breytingar á birtu vara í allt að tvo tíma.
„Og ég mæli með því að fólk sé úti við að fylgjast með alveg frá því að deildarmyrkvinn hefst sem hérna á höfuðborgarsvæðinu er svona sirka 16:47. Svo nær hann hámarki sirka 17:48 og svo lýkur honum klukkan 18:47.“
Aðal óvissuþátturinn er veðrið. Það þarf ekki að vera fullkomið, segir Sævar Helgi, skýjahula með götum dugar.
„Það er alveg sama hvernig viðrar. Ef þú ert inni í almyrkvaslóðinni þá upplifirðu alltaf eitthvað magnað og einstakt sem að þú upplifir aldrei aftur á Íslandi, aldrei nokkurn tímann. Af því að næsta tækifæri er eftir 170 ár, 2196.“