Á þriðja þúsund eru stofnaðilar, að því er kom fram í máli Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, fundarstjóra. Beint streymi má sjá hér að neðan:
Tilkynnt var um stofnun hreyfingarinnar fyrir nokkrum dögum síðan. Áhugasöm geta skráð sig og styrkt hreyfinguna á heimasíðu hennar.
Baráttan samtakanna verður á jákvæðum og uppbyggilegum nótum, að því er komið hefur fram hjá forvígismönnum þeirra.
Meðal ræðumanna eru Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti, og Björn Zoega, fyrrverandi forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi.
Fréttateymi Sýnar er á staðnum og við verðum í beinni útsendingu í kvöldfréttum okkar sem hefjast kl. 18:30.