Umsækjendur eru eftirtaldir:
Friðþjófur Helgi Karlsson
Guðmundur Stefán Gunnarsson
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir
Íris Anna Steinarrsdóttir
Jón Haukur Hafsteinsson
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
„Stapaskóli er heildstæður leik- og grunnskóli og eru um 75 börn á leikskólaaldri og 450 börn á grunnskólaaldri sem sækja skólann. Í Stapaskóla fer fram metnaðarfullt skólastarf þar sem gleði, vinátta , samvinna og virðing eru þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi. Megineinkenni skólans er sveigjanleiki í kennsluháttum, nýtingu rýmis, skipulagi skóladags og skilum á milli skólastiga. Stapaskóli leggur áherslu á teymiskennslu, tækni og heildstæð verkefni sem eru samþætt í gegnum námsgreinar. Einnig er sérstök áhersla á sköpun og listir og verklegt nám ásamt nánum tengslum við nærumhverfi skólans”, segir m.a. í auglýsingu um starfið. Þá kemur fram í auglýsingunni að hlunnindi skólastjóra séu fjögur en það er bókasafnskort, gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum, gjaldfrjáls aðgangur í sund og gjaldfrjáls aðgangur í strætó.