Gítar var stolið af þýsku rokkstjörnunni Wolf Hoffmann úr hljómsveitinni Accept eftir tónleika sveitarinnar í Barcelona á Spáni. Hoffmann heitir fundarlaunum fyrir gripinn.Í tilkynningu hljómsveitarinnar, sem fagnar 50 ára afmæli á þessu ári, segir að gítarnum og fleiri munum hafi verið stolið úr hljómsveitarrútu eftir að sveitin kom fram á tónlistarhátíðinni Barcelona Rockfest núna um helgina.
Gítar stolið af rokkstjörnu – Heitir fundarlaunum