Frakklandsþing felldi í dag vantrauststillögu gegn forsætisráðherra landsins. Stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnina um að bera ábyrgð á þúsundum dauðsfalla þar í landi vegna hitabylgja síðustu mánaða.
Tillagan var lögð fram af stjórnarandstöðuflokki Græningja. Hún sneri að viðbrögðum ríkisstjórnar Sebastien Lecornu forsætisráðherra Frakklands við hitabylgjum í maí og júní. Hitinn fór víða yfir 40 gráður og er talinn hafa valdið rúmlega tvö þúsund dauðsföllum.
Við flutning tillögunnar sökuðu Græningjar ríkisstjórnina um að hafa ekki gripið til nógu umfangsmikilla aðgerða til að bregðast við hækkandi hitastigi af völdum loftslagsbreytinga. Þeir sögðu jafnframt að stjórnvöld bæru ekki síður ábyrgð á dauðsföllunum en hitinn sjálfur.
Sakaði Græningja um að nýta sér fórnarlömb hitabylgjunnar
Tillagan hlaut stuðning 132 þingmanna, aðallega úr röðum Græningja og vinstriflokksins La France Insounice. Það dugði þó ekki til þar sem 289 atkvæði þurfti til þess að vantrauststillagan hlyti samþykki.
Í svari sínu fyrir atkvæðagreiðsluna vændi forsætisráðherrann Græningja um að nýta sér fórnarlömb hitabylgjanna í pólitískum tilgangi í aðdraganda kosninga á næsta ári. Hann hefur þó sagst ætla að verða við kröfum stjórnarandstöðunnar og leggja fram nýtt frumvarp um viðbrögð við loftslagsbreytingum á næstunni.