Fluttar voru fréttir af því í vikunni að vegna fjárhagserfiðleika hefði Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði gripið til þess að segja öllum þjálfurum félagsins upp störfum. Bæjaryfirvöld hétu því að aðstoða félagið við koma sér á réttan kjöl til að starfsemin yrði tryggð. Það kom hins vegar lítið fram um í hversu slæmri stöðu fjárhagur félagsins væri en á fimmtudag var tekin fyrir á fundi bæjarráðs skýrsla sérstkrar eftirlitsnefndar um fjárhag allra íþróttafélaga í bænum. Fram kemur í skýrslunni að fjárhagur Bjarkar stendur einna verst af öllum íþróttafélögum bæjarins.
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist