Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst undan því að koma fram undir nafni þar sem atvikið er nú til rannsóknar.
Flugvélin var á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur og ætlaði að lenda á flugbraut þar sem Fisfélag Reykjavíkur hefur aðstöðu. Það er til skoðunar hvað olli því að flugvélin fór út af en að sögn sjónarvotta var blautt á grasbrautinni sem gerir skilyrðin til lendingar verri.
Flugvélin staðnæmdist rétt fyrir neðan þar sem að brautin endar á litlum barða og var aftari hluti vélarinnar innan við metra frá brautinni. Skemmdir urðu á skrokk flugvélarinnar og á vélinni sjálfri.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.