Fasteignaverð hefur hækkað um tugi prósenta á Íslandi frá árinu 2021 þótt lítið hreyfist þar nú. Á sama tíma hefur hlutabréfamarkaðurinn skilað neikvæðri ávöxtun. Þróunin endurspeglar lítinn og veikburða fjármálamarkað að sögn sérfræðings.
Bankainnistæður fólks hafa aldrei verið meiri og nema nú um 2.000 milljörðum króna.
Ládeyða hefur verið ríkjandi á íslenskum hlutabréfamarkaði síðustu misserin og fjárfesting er í lægri kantinum.
Frá upphafi árs 2021 hefur íslenskur hlutabréfamarkaður skilað 4% neikvæðri ávöxtun en á sama tíma hefur ávöxtun Dow Jones verið jákvæð um 68%. Dow Jones er ein þekktasta hlutabréfavísitala heims en hún mælir þróun hlutabréfaverðs hjá 30 stórum bandarískum fyrirtækjum.
Snorri Jakobsson er íslenskur hagfræðingur, fjárfestingargreinandi og stofnandi greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital. Hann segir síðustu misseri á íslenskum verðbréfamarkaði hafa verið líflaus og döpur.
„Sem er langt tímabil sem er sorgleg þróun og íslenski hlutabréfamarkaðurinn er mjög smár. Við verðum að átta okkur á því að við erum með smæsta hlutabréfamarkað meðal þróaðra ríkja,“ segir Snorri.
Það sé líka einkennandi fyrir íslenska hlutabréfamarkaðinn hvað þátttaka almennings sé lítil. Lífeyrissjóðir, tryggingafélög og verðbréfasjóðir eigi rúm 60% þess sem þar er sýslað með.
„Hlutabréfamarkaður er mjög mikilvægur, sérstaklega fyrir sprotafyrirtæki og vaxtarfyrirtæki, og þetta hangir saman við lága fjárfestingu á Íslandi. Svona lítill og veikburða fjármálamarkaður.“
Innlán heimila um 2.010 milljarðar króna
Á sama tíma hefur verið mikill vöxtur í innlánum hér á landi. Innlán eru peningar sem einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir leggja inn á reikning hjá banka eða sparisjóði.
Innlán heimila eru nú um 2.010 milljarðar króna. Þetta er hæsta staða sem mælst hefur og í fyrsta sinn sem innlán heimila fara yfir 2.000 milljarða króna. Innlán fyrirtækja hafa heldur aldrei verið meiri en nú en þau nema um 850 milljörðum króna.
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og gert áhættumeiri eignir, eins og hlutabréf, síður aðlaðandi.
„Svo það er ljóst að peningarnir hafa verið að leita þangað eftir Covid,“ segir Snorri. „Það er doði alls staðar og ég held að það finni það allir. Það er doði á fasteignamarkaði og það er doði á verðbréfamarkaði og það er lítið um fjárfestingar og nýsköpun.“
Fasteignaverð á Íslandi hefur hækkað um rúm 60% frá byrjun árs 2021. Íbúð sem seldist á 50 milljónir króna í janúar 2021 selst á 80 milljónir króna í dag – ef hún selst.
„Fasteignamarkaður á Íslandi er sá markaður sem hefur hækkað hvað mest meðal þróaðra ríkja. Íslenski fasteignamarkaðurinn og reyndar sá tyrkneski hafa hækkað hvað mest en þessi ríki eiga það sameiginlegt að vera með fremur veikburða fjármálamarkaði,“ segir Snorri.