Von er á skúrum eða éli víðast hvar um landið í dag en lítilli úrkomu norðantil. Gera má ráð fyrir sunnan- og suðaustanátt upp á 8-15 metra á sekúndu fyrri partinn. Hiti á bilinu 0-6 stig.
Gular Viðvaranir vegna sunnan- og suðaustan storms og hríðar taka gildi víða um land síðdegis og í kvöld. Fyrst á Suðausturlandi og svo á Norðaustur- og Norðvesturlandi. Þar verður varasamt ferðaveður.
Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands verður vaxandi austanátt undir hádegi – fyrst suðaustanlands með rigningu eða slyddu en snjókomu til fjalla. Í kvöld er síðan spáð austan- og suðaustanátt upp á 15-23 metra á sekúndu en rólegra veðri vestantil.
Seint í kvöld má vænta sunnan- og suðaustan 18-25 metra á sekúndu með snjókomu eða skafrenningi á Norðurlandi. Hvassast verður á Tröllaskaga á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar en annars víða suðlæg átt, skúrir og slydduvél.
Á morgun verður hitastig um og undir frostmarki. Þá er að vænta suðaustlægrar áttar upp á 5-10 metra á sekúndu víðast hvar og skúrum eða slydduéli en 10-15 metrum á sekúndu á Norðvesturlandi fram yfir hádegi.